|
|
09.05.2007 13:14:17 / majastina
Sælt veri fólkið.
Ætlaði bara að láta ykkur vita að ég er farin í smá bloggásu -
er ekki í stuði fyrir þetta akkúrat þessa dagana.
Takk samt fyrir að kíkja á mig.
Kveðja
Maja Stína
»
23.04.2007 17:18:57 / majastina
Síðustu dagar hafa verið heldur daprir. Amma Dísa dó
síðastliðinn laugardag og ég er vægast sagt búin að vera hálf tóm
síðan þá. Fór í skólann í dag og renndi aðeins - svona bara til að
þykjast. Veit nú ekki alveg hvað verður úr þessu lokaverkefni
mínu núna, því ég kem til Íslands á miðvikudaginn því það á að
jarða hana á föstudaginn. Fer aftur út á
sunnudaginn. Sakna hennar rosalega mikið - hef
ekki átt aðra ömmu en hana í 26 ár - en amma Maja dó
þegar ég var 9 ára.
Ég er nú ekki alveg þessi týpa sem læt allt flakka á
vefnum og gerist persónuleg, en mig langar samt til að
skrifa nokkur orð um hana hér. Blessuð sé minning
hennar.
Eftir
erfiða en stutta baráttu er lífi ömmu Dísu lokið.
Amma var fín og settleg kona eins og maður
segir. Það var stæll yfir henni. Hún passaði að
hárið væri alltaf vel snyrt, elskaði að punta
sig upp og setja á sig stóra og glitrandi skartgripi.
Já, hún var sko pæja sem tekið var
eftir. Ef hún komst í Kringluna lifnaði yfir
henni því þá gafst tækifæri til að dressa sig upp og hitta
fólk. En eftir að afi Gaui veiktist sá hún um að
hjúkra honum og aðstoða og komst þ.a.l. ekki eins oft út og hún
vildi, því henni þótti virkilega gaman að vera innan um
fólk.
Heimili
ömmu Dísu og afa Gauja bar vott um snyrtimennsku og hlýleika, en
amma var mikil listakona og eftir hana liggur mikið handverk sem
prýddi heimilið. Það eru líka ófáir
ullarsokkarnir og peysurnar sem hún prjónaði og gaf barnabörnum
og barnabarnabörnum sínum.
Fyrstu
minningar mínar um ömmu eru frá Miðgarðinum í
Keflavík. Afi vann sem kokkur í mörg ár í
Messanum og amma var þar líka. Það er því
ekkert skrýtið að minningarnar snúist um mat og kökur, en alltaf
var séð til þess að nóg væri af mat og öðru góðgæti – kökum og
nammi sem maður fékk ekki á hverjum degi heima hjá
sér. Seinni árin hefur maður nú grínast með
það að alltaf hafi það verið amma Dísa sem eyðilagði alla
megrunarkúra hjá manni því ætíð bauð hún upp á kökur og með því
þegar maður kom í heimsókn! Að segja nei takk
við því var bannorð.
Þann 25.
mars síðastliðinn hringdi ég í ömmu héðan frá Árósum. Tveir
dagar voru í Íslandsferð hjá okkur fjölskyldunni og allir voru
spenntir að hittast. Amma lofaði stelpunum
pönnukökum og fannst æðislegt að við værum að koma í páskafrí
til Íslands. Þetta sama kvöld fæ ég þær
fréttir að hún hefði fengið hjartaáfall og batahorfurnar væru
ekki góðar. Það voru því blendnar
tilfinningar sem fóru um huga minn þegar til Íslands
kom. Við fjölskyldan fengum að koma í
heimsókn til hennar á sjúkrahúsið og þá var nánast augljóst
hvert stefndi. Það var sárt að horfa upp á hana svona veika en á
hinn bóginn erum við ákaflega glöð yfir því að hafa náð að
kveðja hana. Ég veit að hún var ekki svo
ósátt þegar hún kvaddi því á sjúkrahúsinu sagði hún við mig að
hún gæti ekki annað en verið sátt við lífið og tilveruna því
aldrei hefði hún þurft að horfa á eftir börnum sínum eða
afkomendum. Fyrir það ætti maður að vera
þakklátur. Minning um góða ömmu varðveiti ég
í hjarta mínu - hennar er sárt
saknað.
»
14.04.2007 15:39:16 / majastina
»
09.04.2007 16:34:51 / majastina
Jæja, þá er það heimferð til Danmerkur á morgun - þriðjudag.
Þetta er búið að vera frábær tími með fjölskyldunni á Akureyri og í
Borgarfirðinum. Vona þó að ömmu Dísu takist að ná sér upp úr
veikindum sínum.
Þarf virkilega að spýta í lófana í skólanum - verð að byrja á
verkefninu mínu sem fer á sýningu í lok maí. Sem sagt; vinna -
vinna - vinna. Það verður samt yndislegt að komast í
sumarfríið í lok sama mánaðar (he he er að komast úr fríi og strax
byrjuð að hugsa um næsta frí = það er ekki í lagi!!) 
Vi ses
»
26.03.2007 19:45:30 / majastina
Búin að pakka niður (alltaf sama magnið af farangri !!)-
allir orðnir spenntir að komast á klakann. Lendum upp úr kl.
15:00.
Sjáumst
»
25.03.2007 14:53:12 / majastina
»
24.03.2007 21:05:56 / majastina
Díses, ef einhver á skilið hvítvínsglas, þá er það sko ég .
Síðan kl. hálf tólf í morgun er ég gjörsamlega búin að taka íbúðina
í nefið - þurrka af efstu hillunum og mikið meira en það. Þetta eru
búnir að vera langir 8 1/2 tími í algerri sótthreinsun.
Er sko löngu búin að opna hvítvínsflöskuna á meðan ég skúraði
þvottahúsgólfið og baðgólfið upp úr klór o.fl. Held ég sé bara
nokk. sátt við afraksturinn í dag. Og þar sem húsbóndinn var að
vinna í allan dag ætla ég að leyfa honum að taka neðri skápana á
eldhúsinréttingunni á morgun á meðan ég hleyp hálft maraþon. Hlakka
til að taka svona langa vegalengd. Hef ekki hlaupið svona langt
síðan síðasta sumar, að vísu á brettinu þá. En þar sem veðurspáin
lofar góðu á morgun ákvað ég að hvíla mig á hlaupum í dag og í gær
því ég skal hlaupa þess 21 km. á morgun.
Þegar ég var nýbúin að skúra stofugólfið kemur frk. Júlía alveg
á spani og segist alveg vera að pissa í sig, en hún vilji ekki fara
á klósettið fyrr ég (þjónustustúlkan) setti kollinn fyrir framan
klósettið. Ég hélt nú ekki, kollurinn væri inn á baði hún gæti sko
alveg sjálf komið honum fyrir. "Nei, þú", segir daman. "Nei, þú
gerir það sjálf, ég er engin þjónustutík hér", segi ég. Hvað
haldið þið að dýrið hafi gert???? Hún segir; ÉG ER AÐ PISSA Á
GÓLFIÐ". Ég hélt hún væri að grínast, en díses, hún meig bara
að stofugólfið af því að ´ÉG, nennti ekki að hlaupa undan
tiktúrum hennar Hvað hefur mér misfarist í
þessu uppeldi. Það sauð á mér - fannst ég einskis virði,
eftir að hafa verið í sótthreinunargallanum í ALLAN dag.
Djöf... varð ég reið. Henti henni síðan í sturtu og lét
hana bjarga sér þar. Já, held hún geti aðeins séð um sig
sjálf - hún er jú á sjöunda ári (litla barnið mitt )
Jæja, ætla að fara að skella mér í náttgallann. Er þreytt og
lúin eftir erfiðan dag (það mætti halda að ég byggi í 500 m2 höll -
en kotið mitt er nú bara 100m2 ). Ætla að bera á mig fínan
handáburð og fá eiginmanninn til að nudda lúnar fæturnar þegar hann
kemur heim í kvöld. Ummmm.
Hafið það gott elskurnar mínar.
»
24.03.2007 11:38:20 / majastina
Mín alltaf að telja niður 
Kom heim kl. hálf fjögur í nótt - var á útstáelsinu með Möggu og
Brynju frænku hennar. Fengum okkur að borða og kíktum svo
aðeins á staðina - allt ferlega rólegt og nice. Jæja, mín kom sem
sagt heim í nótt - og viti menn, vinir mínir maurarnir gjörsamlega
voru búnir að hertaka þvottahúsgólfið - um leið og ég kem inn og
kveiki ljósið sé ég bara gólfið á hreyfingu eins og einn
stóran vígvöll - finnst ykkur þetta ekki æði ? Ætla að
sótthreinsa heimilið í dag - kaupa klór og gúmmihanska og taka
húsið í nefið. Verð eitthvað að gera áður en við förum á klakann -
annars má búast við stöðugum eftirlitslausum partýhöldum í 14
daga. Það náttúrulega gengur ekki!!!!
Jæja verð að skjótast - Júlía er að fara á handboltaæfingu og
mín býður sóttheinsieldurinn 
Sjáumst
»
23.03.2007 08:25:13 / majastina
Er gjörsamlega að flippa út þessa dagana. Ekki nóg með það
að í húsinu hjá okkur er kominn "myglusveppur" á tveimur stöðum og
maurarnir eru vaknaðir - allt of snemma. Þvottahúsgólfið hjá
okkur er iðandi á kvöldin - ójbara. Er búin að tala við
húsfélagið og þeir ætla að koma í næstu viku með einhverja háværa
maskínu sem verður í gangi tventíforseven - því hentar það bara vel
að vera á leiðinni á klakann og losna við hávaðann. Þessi
maskína á víst að sjúga í sig rakann/myglusveppinn - síðan
kemur viðgerðarkallinn og lagar og málar. Sem sagt allt klappað og
klár þegar við komum aftur hingað út. En hvað við gerum í
mauramálunum veit ég ekki. Las á einhverri danskri síðu í gær um
margar "skrítnar" aðferðir til að drepa maura. Ein var t.d. þannig
að setja ger í vatn, ásamt hveiti (nokkurs konar brauðbolla)- setja
þetta á gólfið hjá maurunum og eftir smá tíma á maður að sjá
maurana springa og drepast!!! - Já ég veit ekki hvort er betra -
myglusveppur eða útúrsprungnir maurar!!! Veit einhver um
góðar drápsaðferðir????? Díses, mig er farið að klæja!
Yes, bara 4 dagar í dag. Og eins og Júlía segir; "yes,
mamma, það eru bara 2 skóladagar eftir þangað við förum til
Íslands". Greyið, hún er alveg að deyja úr spenningi - er
ferlega fegin að losna við skólann - er ekki alveg að fíla
kennarann - stöðug valdabarátta þar eins og hér heima!
Sí jú mæ frends 
»
22.03.2007 17:19:22 / majastina
já já mikið réttt - í dag eru 5 dagar. Yes yes yes
»
21.03.2007 08:35:56 / majastina
Er á lífi - hugsa bara um það að komast á klakann, fara í
ræktina í Lífsstíl með Helenu, njóta þess að vera með
fjölskyldunni, fara út að hlaupa, og síðast en ekki síst. Stelast í
Nóa og Síríus páskaegg um páskana. Díses hvað ég
hlakka til
Já, það eru 6 dagar í dag þangað til við förum loftið. 
Ætla að kíkja á árshátið hjá Heiðarskóla á miðvikudaginn -
hlakka til að sjá gamla nemendur mína.
Bless í bili. 
»
15.03.2007 11:37:46 / majastina
Já það hefur sko heldur betur viðrað vel hjá okkur í Árósum
þessa vikuna. En því miður þá segir veðurkallinn í fréttunum
að veturinn komi aftur til okkar á sunnudaginn með aðeins 4-5 stiga
hita Á mánudaginn minnir mig fór hitinn upp í 17 stig og
Frk. Júlía var ekki lengi að fara í stuttbuxurnar og bolinn. Ég lét
mínar stuttbuxur í friði - var heldur í lopapeysunni minni 
Og alltaf tel ég niður til heimsóknarinnar - í dag = 12 dagar.
Dagskráin verður því miður þétt eins og vanalega. En ég vil
endilega láta ykkur vita hvar við höldum til => förum 30 mars
norður á Akureyri og verðum þar eitthvað fram yfir helgina og
verðum síðan upp í bústað páskahelgina. þannig að ef þið viljið
hitta á okkur eruð hjartanlega velkomin. Ég man nú ekki alveg
símanúmerið sem ég er með á ísl. en síminn hjá pabba er:
8400701.
Miðarnir á George Michael eru komnir í hús. Það gekk nú ekki
alveg snuðrulaust fyrir sig. Steini beið í startholunum kl. 10 á
mánudagsmorgun þegar miðasala hófst. Honum tókst að fá miða en
einhverra hluta vegna dettur hann út á netinu og missir miðana -
þvílíkur bömmer. Allir miðarnir seldust upp á 27 mínútum. Í
kjölfarið var ákveðið að halda aukatónleika daginn eftir og mér
skilst að enn séu nokkrir miðar óseldir. En.... af því að kallinn
minn er svo klár og þekkir fólk á réttum stöðum þá reddaði hann
okkur miðum á fyrri tónleikana. Ég er ekkert smá ánægð - þannig nú
verður bara hlustað á Wham og súkkulaðigæann George Michael á meðan
ég þríf heimilið fram að tónleikunum. Nei - það var
enginn sem vildi koma frá Íslandi með mér á tónleikana 
Er að ná heilsu - hélt mér þó heima í dag - er ekki alveg eins
og ég á að vera. Er farin að þrá að fara út að hlaupa - hef ekkert
hlaupið síðan á föstudaginn var - djö.... finnur maður fyrir því

Venlig hilsen
»
14.03.2007 09:02:02 / majastina
Ligg lasin heima í dag - með flensuna = hita, höfuðverk og
beinverki. Fór í skólann í gær en fór heim um hádegið, alveg að
farast.
Nenni ekki að skrifa meira - vildi bara láta vita af mér því það
er svo langt síðan síðast.
»
08.03.2007 20:15:16 / majastina
Jibbý, bara 19 dagar í Íslandsferð - við fjölskyldan hlökkum
mikið til og teljum niður hvern einasta dag
Köben ferðin á þriðjudaginn var bara nokkuð góð. Held samt að ég
hafi aldrei eytt eins litlu í höfuðstaðnum. Fengum engan tíma til
að kíkja í búðir - þrömmuðum út um alla borg og skoðuðum skóla,
söfn og gallerí. Ég ákvað að vera skvísa þennan dag og hvíla
strigaskóna og fór í fínu Bianco stígvélin mín, sem eru með pínu
hæl. Þetta gekk bara vel en þegar líða tók á daginn fór
þreytan í ökklunum að segja til sín. Maður hélt þetta nú samt
út. En.... í gærmorgun þegar ég vaknaði var ég með þessar líka
harðsperrur í lærunum. Díses, ég var búin að gleyma hvernig þær
væru. = ekki gaman.
Svo lentum við í miðri kveðju athöfn á Norrebro - þar sem allir
voru með tárin í augunum og létu andúð sína á lokun Ungomshússins í
ljós. Æi, mér finnst þetta nú hálfgert bíó. Í þessu húsi hékk
mikið ungt fólk sem nennti ekki að vinna og fara eftir lögum
og reglum samfélagsins. Svo ætlast þetta fólk til þess að ríkið
skaffi sér nýtt hús til að hanga í - ohhhh, þessir Danir. Þeir eru
svo rosalega "social" eitthvað - allir vinir, allir hjálpa öllum og
RÍKIÐ BORGA. Ja, eitt hef ég lært hér í Danaveldi; að ég er
EKKI jafnaðarmanneskja. Þoli ekki þessa jafnaðarmannastefnu hérna
þar sem allir eiga að vera jafnir - enginn má skara fram úr. Þetta
má sjá í skólunum þar sem duglegum nemendum er hreinlega haldið
niðri - það er enginn metnaður til að standa sig. Engin
einstaklingsstefna þar sem áherslan er lögð á einstaklinginn
sjálfan og hans metnað og kröfur. ÓTRÚLEGT - Ég kemst í svo mikinn
ham þegar ég spái í þessum málum því ég sé nefnilega breytingu á
Sirrý hvað varðar metnað til að læra. Það er gjörsamlega búið að
kaffæra hana - þ.e.a.s. hún er búin að missa allan metnað -
við þurfum að pína hana til að læra eitthvað aukalega - nú, af
hverju? - Því það er ALDREI neinn heimalærdómur. Hvernig í
ósköpunum eiga börn að læra að vinna - bjarga sér - hafa metnað
þegar þeim er haldið svona niðri????? Svar
óskast!!!
Ætla í skólann á morgun og dunda mér svolítið - sting Steina af,
hann er í fríi. Ég ætla að leyfa honum að taka föstudagsþrifin -
ALEINN. 
Hvað er þetta með mannskapinn - hefur enginn áhuga á George
Michael?? Held að miðinn kosti um 600 dkr.
Hafið það gott dúllurnar mínar - óver end át 
»
05.03.2007 18:31:50 / majastina
Hej allir saman. Var að frétta að George Michael verður með
tónleika hér í Árósum þann 18. maí. Við hjónakornin ætlum sko
að skella okkur og fleiri sem ég hef talað við. Langar ekki
einhvern að skella sér - býð ókeypis gistingu og ódýra strætóferð
niður í bæ!!!!! Miðasalan byrjar þann 12. mars að mig minnir - á ég
að panta fyrir einhvern annan en mig og Steina??? Það væri nú
bara GEGGJAÐ, ekki satt? 
Fer til Köben eldsnemma í fyrramálið - og kem seint heim sama
dag.
Bið að heilsa í bili
»
Síður: 1 2 3 4
|
|